fimmtudagur, maí 11, 2006

Heimanám í varnar- og öryggismálum

Ég ákvað í fyrradag að þiggja þetta góða boð Bandaríkjastjórnar og lesa mig til um varnar- og öryggismál. Herinn er að fara og einhver þarf að hugsa skynsamlega um þessi mál. Ég gekk inn í Þjóðarbókhlöðuna. Loftið þar var eins og venjulega - óvenjufúlt (skil ekki loftræsismálin þar á bæ). Ég fékk mér þrjár bækur:

1. Resource Wars: The New Landscape of Global Conflict eftir Michael T. Klare
2. The War on Our Freedom ritstj. R.C. Leone og G. Anrig
3. The Iraq War eftir W. Murray og R.H. Scales Jr.

Smá hugleiðing varðandi bækur og lífið: Þær eru margar bækurnar sem mig langar að lesa og þær eru margar sem ég þarf að lesa, auk þess er lífið stutt.

Engin ummæli: