Um helgina fékk ég 6 sms skeyti (öll tóm) á tímabilinu frá 03:00 til 04:00 (sem er býsna snemmt ... eða seint, eftir því hvernig á það er litið). Sem betur fer var slökkt á símanum þannig að engin á heimilinu varð fyrir ónæði. Hver gerir svona lagað?
2 ummæli:
Sælinú. Ég fékk líka dularfullt sms um daginn en það var meira spennandi en þitt. Við nánari athugun kom í ljós að það kom frá ungri stúlku af deildinni okkar. Hún sagði að einhver ákveðin kona dýrkaði jörðina sem ég geng á. Mér datt strax í hug að um Sigurbjörgu væri að ræða. Hver dettur þér í hug?
Knúturinn.
Þetta er ekki Sigurbjörg. Hins vegar get ég upplýst þig um að það að höfundur þessa SMS skilaboðs er einhver vinkona samstarfskonu okkar (hef þetta "from the source"). Meira veit ég ekki.
Skrifa ummæli