laugardagur, júlí 01, 2006

Sjónvarpssæla

Þar sem ég er áskrifandi að Digital Ísland hef ég aðgang að böns af sjónvarpsrásum. Nýlega uppgötvaði ég að Hallmark stöðin er að sýna gamla þætti af West Wing (sem er eitt af uppáhalds þáttunum mínum). Ég gæti alveg hugsað mér að vera í sporum Sam Seaborn (sem Rob Lowe leikur) og skrifað ræður fyrir forseta Bandaríkjanna.

Allir litlir strákar eiga sér draum.

2 ummæli:

Tinna Kirsuber sagði...

Maður segir samt engum að maður horfi á HALLMARK stöðina... Það er eins og að viðurkenna að maður horfi á Oprah, Dr. Phil og sjónvarpssápur.

HTB sagði...

Fröken Kirsuber, hér er mín sjónvarpssyndaregister;

i) West Wing (á Hallmark og RÚV)
ii) Valdir þættir á Entertainment Channel
iii) The Hour of Power (á Ómega)
iv) Paradise Hotel (ekki lengur á dagskrá)
v) Star Trek (allar seríurnar)
vi) Scooby Doo (á Cartoon Network)
vii) NASCAR kappakstur (á Motor Channel)
viii) FOX News
ix) BBC Food Channel
x) Súmó glíma (á Eurosport)