mánudagur, september 04, 2006
IKEA upplifunin
Ég og fjölskyldan skruppum í IKEA í dag. Það er áhugaverð upplifun að fara í IKEA. IKEA dregur fram bestu hliðar mannsins. Það eru allir hamingjusamir í IKEA. Allir eru rólegir og glaðlegir. Það er enginn æsingur í fólki eða slæmir “víbrar” í gangi. Maður hittir alltaf einhvern þar sem maður þekkir. Meira að segja á kaffiteríunni fær maður tækifæri til að borða tiltölulega góðan mat á verði sem gengur og gerist í útlöndum. Allir standa síðan upp frá borðum saddir og sáttir ... allt svo hryllilega sænskt eitthvað.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
6 ummæli:
Sammála. Það er líka svo gaman að sjá öll ungu pörin að kaupa sér húsgögn saman í fyrsta skipti. Algerlega laus við biturðina sem fylgir óhjákvæmilegum sambandslitum. Vita ekki að tveggjasæta-sófinn sem þau kaupa mun brátt minna þau á tilgangsleysi ástarsambanda yfir höfuð. Lazy boy fyrir einn er alltaf lausnin.
En allavega. Alveg sammála þér, Hilmar minn. IKEA rúlar.
Knúturinn.
Spurning um hver er bitur!!!
kv.
Lilja
Bitur? Ég? Aldrei. Það ert bara þú sem ert eitthvað klikkuð.
Knúturinn.
Það væri gaman að vita hver Lilja er.
Þetta mun vera hún Lilja vinnufélagi.
Knúturinn.
Já sú Lilja ... þá er bloggnotendahópur minn kominn upp í fjóra einstaklinga.
Skrifa ummæli