mánudagur, október 23, 2006

Fleiri setningar sem eru ekki beint ... ég

Já já ... ég segi bara allt ágætt. Búinn að vera sjónvarpslaus í tvo mánuði og þetta er bara fínt.

Nei takk, ég get ómögulega borðað meira súkkulaði.

Ég hef ekki farið í Eymundsson síðan í fyrra.

OK, samkvæmt þessu korti eru bara tveir kílómetrar að Landmannalaugum. Við skulum ganga síðasta spottann og slá svo upp tjaldi.

Sæll vertu. Ekki varst þú á Hrauninu sumarið 2002?

Vá ... mikið elska ég að lesa nemendaritgerðir.

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hilmar, ég keypti þetta alveg þangað til í síðustu setningunni. Glætan að þú hafir t.d. ekki fílað ritgerðina mína um bloggið sem miðil.

HTB sagði...

Þú varst undantekningin sem sannaði regluna.

Nafnlaus sagði...

Það hlaut að vera.

Meira af þessu annars. Örsögurnar eru skemmtilegar en þetta er stórkostlegt.

V sagði...

Ég undirritaður mótmæli því hér með að mínar ritgerðir sem skiluðust til þín hafi verið leiðinlegar. Undirritaður er mjög stoltur af því að hafa náð að troða upplýsingum um líftíma ávaxtaflugu inn í ritgerð í fjölmiðlafræði!
Það er ekki á allra færi!
Kveðja,
Viggó Undirritaður Jónasson

Nafnlaus sagði...

Já, þetta var í þá daga sem Viggó hafði uppgötvað að það er ekkert mál að klára BA-próf með því að tengja saman alls óskildar (og að því er virðist tilgangslausar) staðreyndir og kalla það ritgerð.

Ég lærði af Viggó mínum og þessi aðferð er að nýtast fleirum vel núna.