Þessi vísa hefur verið þrætuepli milli mín og konunnar minnar. Lengi vel hef ég talist til umbótasinna eða raunsæismanna eins og rithöfundurinn Pétur Gunnarsson kýs að kalla þá. Ég hef lesið undanfarna daga nokkrar blaðagreinar um þetta mál og séð viðtal við Unu Margréti Jónsdóttur í Íslandi í dag. Í ljósi gagnanna hef ég skipt um skoðun. Í stuttu máli sagt þá eru jólasveinarnir með gylltan staf í hendi og kannan stendur upp á stól. Það þarf nefnilega ekki allt að vera rökrétt í barnavísum og það er allt í lagi að jólasveinar séu með eitthvað af gulli í stafana sína. Heimur þeirra er heimur ævintýranna.
Að lokum langar mig að óska þeim í heimsbyggðinni sem lesa bloggið mitt gleðilegra jóla.
laugardagur, desember 23, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
Takk fyrir kveðjuna og gleðileg jól sömuleiðis. Ég vona að þú og þínir hafið það sem allra best yfir hátíðirnar.
Gleðileg jól, Hilmar! Hvað borðar þú annars í kvöld? Bjúgu?
Jón Knútur.
Gleðileg jól.
Sammála þér með vísuna. Ég mundi þó hafa fílósóferað þetta á annan hátt: Ef jólasveinarnir eru með gullið í vísum venjulegs fólks, þá er það bara svoleiðis. Þá er vísan ekkert öðruvísi.
Háskólafólk gæti verið með rembing og sagt að vísan ætti að vera öðruvísi (vegna rökfræði, sögulegrar ískotunar eða hvað veit ég), en það væri aldrei annað en rembingur. Því það er í hugum og röddum venjulegs fólks sem svona vísur eru en ekki í æðri dómum lærðra.
Eins og segja mætti (og vísa í Atómstöðina): Það bara er svoleiðis; rien a faire.
Hins vegar getur þetta náttla breyst, en það verður þá aðeins að venjulegt fólk fer að syngja öðruvísi (eða öðruvísur - nei, djókur).
Verð þó að viðurkenna að ég hef hvorki lesið greinar um þetta né heyrt viðtöl, þannig að þessar pælingar eru kannski "utangáttar"...
Skrifa ummæli