Ég var að brjóta saman nærbuxurnar mínar um daginn, sem í sjálfu sér er ekki í frásögu færandi. Ég veitti miðanum í brókunum eftirtekt og þar stóðu þessi viðvörunarorð;
KEEP AWAY FROM FIRE. Ég hef skrifað um svipaða hluti áður, en mér er spurn, eru þessi orð virkilega nauðsynleg?
2 ummæli:
Þetta er örugglega svipað og með geðlyfin þar sem allar hugsanlegar aukaverkanir eru taldar upp í fylgiseðlinum, það vantar bara alnæmi og krabbamein. Þetta gera líklega framleiðendur til að fría sig frá allri ábyrgð og lögsóknum... Það væri alveg eftir einhverjum sauðheimskum bandaríkjamanni að kveikja í brókinni sinni og ætla svo að punga út peninga fyrir það af því það stóð hvergi KEEP AWAY FROM FIRE. Ég myndi allavega sleppa því að kveikja í rassinum á mér í þínum sporum, ég held þú græðir ekkert á því nema skömm og brunasár. Kveðja...
Málið er hins vegar þetta Tinna ... þetta virkar á mig eins og áskorun.
Skrifa ummæli