miðvikudagur, febrúar 07, 2007
Haruki Murakami
Ég hef lengi ætlað mér að lesa bækur japanska rithöfundarins Haruki Murakami en aldrei látið vera af því fyrr en nú. Ég hef lokið við þrjár og ég get ekki kvartað. Hann er frábær höfundur. Það er tvennt sem vekur áhuga minn. Annars vegar finnst mér bækurnar vera frekar "ójapanskar". Þær geta þess vegna fjallað um fólk í New York eða London. Hins vegar eiga konurnar í bókunum til að hverfa og birtast aftur og hverfa síðan aftur.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Já, ég er svo innilega sammála þér. Murakami er frábær rithöfundur og það er ávanabindandi að lesa hann.
Eru þær kannski "ójapanskar" af því að ungt fólk, sem oftast eru í aðallhlutverki hjá Murakami, er meira og minna að glíma við sömu tilfinningarnar hvort sem það býr í Tokyo, New York eða á Egilsstöðum...?
Jón Knútur.
Skrifa ummæli