laugardagur, apríl 28, 2007

Játningar

1. Mér leiðist afskaplega að ganga í rigningu.
2. Ég hef einusinni kosið Sjálfstæðisflokkinn í kosningum til Alþingis.
3. Þegar ég fer í matvöruverslanir þar sem eru salatbarir freistast ég oft til að krækja mér í ólívu.
4. Einu sinni gekk ég í Framsóknarflokkinn. Úrsögn mín úr flokknum tók gildi daginn eftir.
5. Mér finnst Spaugstofan hundleiðinleg.
6. Ég á alveg eftir að lesa Heimsljós eftir Halldór K. Laxness.
7. Um daginn kláraði ég heilan Coco Puffs pakka (530 gr.) á tveimur dögum.
8. Ég fór síðast í sund árið 1996.

Engin ummæli: