þriðjudagur, júní 12, 2007
Ljúfur samt undarlegur dagur
Dagurinn í dag var afar ljúfur. Veðrið var eins og best verður á kosið. Ég átti frí frá vinnunni í dag þannig að ég og frúin mín löbbuðum niðrí bæ. Við vorum stödd á Skólavörðustígnum þegar henni datt í hug að skreppa í verslun sem selur ullarföt. Ég ákvað að njóta blíðunnar og satt á bekk fyrir utan búðina og skoðaði mannlífið og reyndi að hugsa einhverjar frumlegar hugsanir. Allt í einu kemur ca. fjögurra ára drengur hlaupandi til mín og æpir til móður sinnar, "mamma, flott stytta." Hápunktur dagsins var hins vegar þegar við skuppum í bókabúð Máls og menningar og þar keypti ég bókina Norwegian Wood eftir H. Murakami (í Random House útgáfunni).
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli