
Boltinn er byrjaður að rúlla og e.t.v. verður þessi olíuhreinsistöð á Vestfjörðum að veruleika áður en langt um líður. Fyrir þá sem óttast að Vestfirðingar séu að eyðileggja fallega náttúruperlu vil ég segja þetta. Óttist eigi, hugsið ykkur hvað þetta verður falleg sjón að næturlagi og án efa verða ferðamennirnar margir sem vilja leggja leið sína þangað til að skoða hreinsistöðvaljósin í bland við norðurljósin.
2 ummæli:
Hvað ætli ljósin sem sáust yfir Reykjavíkurborg í nótt hafi nú mengað mikið? Þessu leika menn sér að í borginni. Fussumsvei!
Þetta er góð og gild spurning en ég get því miður ekki svarað henni, ég sat heima og horfði á upptöku af Stargate SG1 meðan á þessu stóð. Skyldu borgaryfirvöld hafa sótt um koldíoxíðlosunarkvóta vegna flugeldasýningarinnar?
Skrifa ummæli