laugardagur, október 27, 2007

Léttvín og matvörubúðir

Við skulum gefa okkur það að matvörubúðir fái heimild til að selja léttvín og bjór. Mun ég virkilega standa einhvern tíma andspænis afgreiðslupilti í verslunni 10-11, sem hefur tvo um tvítugt (auk þess sem hefur hætt námi í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti eftir eitt og hálft ár) og spyrja, "hvort mælirðu frekar með ... Chateau Bellevue-La-Forét eða Cótes du Roussillon Villages? Ég er nefnilega með villibráð í ofni."

3 ummæli:

Esther sagði...

Þú? Með villibráð? Yeah, right!

HTB sagði...

Hmmm ... lítur fyrir að matgestunum hafi fækkað um einn.

HTB sagði...

MatARgestunum ... ætlaði ég víst að segja.