sunnudagur, nóvember 04, 2007

Tíu litlir "þið vitið hvað"

Dóttir mín og ég áttum leið í barnadeild Eymundssonar um daginn. Meðan hún var að dunda sér, fletti ég bókinni "Tíu litlir drengir af afríkskum uppruna." Þetta var stutt bók og fljótlesin. Ef ég ætti að giska, þætti mér líklegt að ég hafi lesið hana á 43 sekúndum. Margir hafa tjáð sig um bókina og fundið margt henni til foráttu. Ég vil leggja mitt af mörkum. Svakalega er bókin dýr. Hún kostar eitthvað um 2400 krónur. Þetta eru dýrkeyptar 43 sekúndur.

Engin ummæli: