miðvikudagur, mars 12, 2008

Bókamarkaðurinn 2008

Um daginn fór ég á Bókamarkaðinn í Perlunni. Reyndar heitir sá markaður Stóri bókamarkaðurinn. Ég spyr aftur á móti ... hvar er þá Litli bókamarkaðurinn? Hófsemi var leiðarljós mitt í þetta skiptið. Ég keypti Ljóðhús eftir Þorstein Þorsteinsson (hún fjallar um ljóðskáldið Sigfús Daðason); Fáfræðin eftir Milan Kundera; og Míramar og Þjófur og hundar eftir Nagíb Mahfúz.

Hófseminni lauk ekki þar með. Í dag litum við hjónin í fornbókaverslunina hans Braga á Hverfisgötunni. Þar fann ég (og keypti) ævisögu Raymonds Chandlers eftir Frank MacShane, Memoris of a Beatnik eftir Diane di Prima og loks Öldin okkar 1931-1950.

Auk þess eru tvær bækur ókomnar frá Amazon ... hvar endar þetta allt saman?

Engin ummæli: