miðvikudagur, október 08, 2008

Bókmenntaverðlaun Nóbels

Ég er enginn bókmenntafræðingur en ég hef gaman af góðum litúratúr og þykist nokkurnveginn hverjir þykja áhugaverðir og hverjir ekki. Samt hefur Nóbelsnefndinni tekist að koma mér á óvart. Aldrei hef ég heyrt um Elifriede Jelinek, Gao Xingjian, Wislawa Szymborska, eða Claude Simon. Á morgun mun nýr höfundur bætast í hópinn. Það eru tveir höfundar sem ég vildi gjarnan sjá hljóta verðlaunin, Philip Roth og Haruki Murakami. Gallinn er bara sá að sá fyrrnefndi er bandaríkjamaður og sá síðarnefndi er of ungur. Að öllum líkindum mun ég verða hissa á morgun, eina ferðina enn.

Engin ummæli: