sunnudagur, janúar 04, 2009

Hið nýja ár 2009

Til er kínverskur málsháttur (reyndar er umdeilt hvort hann sé kínverskur eða ekki en það er önnur saga); megir þú lifa á áhugaverðum tímum. Það skal tekið fram að þetta er ekki heillaósk, heldur bölvun. Ég færist undan að óska lesendum mínum gleðilegs árs. Ég kýs frekar að vera raunsær. Þetta ár verður ekki gleðilegt. Þess í stað vil ég segja; megir þú þrauka út árið 2009 nokkurn veginn óskaddaður/ósködduð.

2 ummæli:

Jóhann M. Hauksson sagði...

En hvers eiga blessuð börnin að gjalda; hví er ekki óskaddaður/ósködduð/óskaddað?

Svoldið þunglamanlegt og ljótt að vísu, en ég meina, ef maður vill að rétt sé rétt...

Gleðilegt ár!

HTB sagði...

Blessaður JMH. Ég skal fúslega játa að þessi pistill er frekar grár. Kannski var það bara veðrið sem hafði þau áhrif á mig. Sennilega verður þetta ár eins og gleðilegt og maður vill hafa það. Þetta er oft spurning um val.