föstudagur, ágúst 21, 2009

Lífið var einfalt

Lífið var einfalt í gamla daga. Þegar ég ólst upp vissi ég af Hollywood. Þaðan komu kvikmyndir. Þegar ég komst á fullorðinsár komst ég að því að til var eitthvað sem hét Bollywood. Þetta réð ég við. En í dag var ég að lesa dagblöðin og komst að því að til eru kvikmyndaskólar (eða hvað sem þetta nú kallast) sem heita Tollywood og Kollywood. Allt í einu er líf mitt flókið.

Engin ummæli: