þriðjudagur, júní 01, 2010

Lélegt lestrarár

Ég hef verið býsna lélegur að lesa í ár, en þó finnst mér að ég sé alltaf að lesa. E.t.v. er ástæðan sú að bækurnar sem ég vel mér eru býsna langar og letrið smátt, þ.a.l. verða afköstin (þ.e. í lesnum titlum) lítil. Rannsóknarskýrslan vegna bankahrunsins bíður mín. Mig langar að lesa hana og mig langar ekki að lesa hana. Ef ég les hana, les ég varla neitt annað næstu 3-4 mánuði. Ég á ógrynni af ólesnum bókum upp í hillu hjá mér, og við þetta bætist að lífið er stutt.

Engin ummæli: