miðvikudagur, ágúst 04, 2010

Bók sem ég las


Gott og vel ... Bankster eftir Guðmund Óskarsson. Mér fannst bókin leiðinleg. Verðskuldaði hún Íslensku bókmenntaverðlaunin? Ég veit það hreinlega ekki enda er smekkur minn annar en þeirra sem sátu í dómnefnd. Ég ætla hins vegar að birta smá umsögn um bókina eftir einhvern bókmenntaspeking úr Háskóla Íslands;

Hvað sem slíkum vangaveltum líður má ljóst vera að Guðmundur Óskarsson hefur meira en kveðið sér hljóðs með þessari skáldsögu sinni; nóvellan sem kom út í fyrra sýndi efnilegan höfund sem greinilega hefur tekið þá ákvörðun að vera það ekki of lengi og skrifa fullburða skáldsögu. Hann er óhræddur við formið og gerir tilraunir með einfaldri en um leið einlægri frásögn í dagbók og það lofar líka góðu því það er kannski aðeins í nýstárlegu samspili forms og efnis sem skáldsagnahöfundar finna leið til að segja eitthvað nýtt með nýjum hætti eins og Guðmundur gerir eftirminnilega í þessari sögu. Spurning okkar daga, og það ekkert síður en á kjarnorkuöld, er hins vegar vitaskuld hvort okkur endist framtíð til kynnast nútíðinni sem fortíð.

Engin ummæli: