þriðjudagur, febrúar 24, 2015
Bók sem ég las
John Fante er einn af þessum höfundum sem tíminn gleymdi og fann síðan aftur. Hann ritaði sínar bækur á fjórða áratug síðustu aldar og naut hylli þá, gleymdist svo í nokkra áratugi og var svo enduruppgötvaður upp úr 1980. Reyndar er þetta í annað skiptið sem ég les Ask the Dust sem segir náttúrulega sína sögu um gæði bókarinnar. Stíll minnir svolítið á Charles Bukowski enda sagði hann á sínum tíma að Fante hafi haft mikil áhrif á sig. Þess má geta að sonur John Fante er virtur rithöfundur í Bandaríkjunum og heitir hann Dan Fante.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli