föstudagur, janúar 27, 2006

Fréttir af framboði (ii)

Sveinn Sv. Sveinsson frambjóðandi Framfaraflokksins í Norðurlandskjördæmi neðra hafnaði í fimmta sæti í almennu lokuðu prófkjöri sem haldið var um síðustu helgi. Tólf manns greiddu atkvæði, en alls höfðu um 340 flokksmenn rétt til þátttöku. „Ég vil fyrst og fremst þakka fjölskyldu minni og öllu því góða fólki er studdu mig. Ber er hver að baki, nema sér bróður eigi. Þetta var geysihörð barátta en drengileg,“ sagði Sveinn við blaðamann Héraðsfréttatíðinda eftir að lokatölur voru birtar. Aðspurður sagði Sveinn hvorki hyggja á sérframboð enda lítur hann svo á að fimmta sætið sé baráttusæti flokksins í kjördæminu. Í síðustu kosningum fékk Framfaraflokkurinn þrjá menn kjörna. Þegar Sveinn var spurður að hvaða málaflokki hann kæmi til með að leggja höfuð áherslu á ef hann næði kjöri svaraði hann eftir smá umhugsun, „Atvinnumál eru mér afar hugleikin“.

Engin ummæli: