sunnudagur, janúar 29, 2006

Fréttir af framboði (iii)

„Eins og forsætisráðherra Breta sagði eitt sinn, þá er vika ákaflega langur tími í pólitík. Ákaflega langur tími. Staðan, eins og hún er í dag, er galopin. Galopin. Það getur bókstaflega allt gerst,“ sagði Hróbjartur Hrólfsson í samtali við blaðamann Héraðsfréttatíðinda þegar úrslitin lágu fyrir í prófkjöri Framfaraflokksins í Vesturlandskjördæmi ytra. Hróbjartur sem er þingmaður kjördæmisins hafnaði í fjórða sæti en hann stefndi á það fyrsta. „Já, ég get sagt það hér og nú, það er aldeilis óvíst hvort ég taki fjórða sætið. Ég er í pólitík til þess að hafa áhrif, ekki bara til að taka þátt og vera með.” Hróbjartur segist hafa fengið margar áskoranir frá fólki hvaðanæva að í kjördæminu og frá öllum flokkum, í þá veru að hann fari í sérframboð. Er Hróbjartur var inntur eftir því hvað hann hyggst gera sagði hann, „Nú ætla ég að leggjast undir feld og íhuga málið frá öllum hliðum.”

Engin ummæli: