miðvikudagur, febrúar 01, 2006

Fréttir af framboði (iv)

Á kjördæmisráðsfundi Framfaraflokksins í Austurlandskjördæmi var samþykkt eftirfarandi stjórnmálaályktun:

„Framfaraflokkurinn er alíslenskur stjórnmálaflokkur sem er sprottinn úr íslenskum jarðvegi og er reiðubúinn að glíma við íslenskan veruleika. Framfaraflokkurinn er framfarasinnaður umbótaflokkur sem hafnar öllum öfgum til hægri og vinstri. Framfaraflokkurinn vill innleiða ný vinnubrögð í íslensk stjórnmál. Spilling og fyrirgreiðslupólitík hefur alltof lengi verið einkennandi fyrir stjórnmálalíf hér á landi. Þessu vill flokkurinn breyta. Framfaraflokkurinn vill taka upp heiðarleg og trúverðug vinnubrögð í pólitík. Framfaraflokkurinn vill opið stjórnmála- og embættismannakerfi sem tryggir jafnrétti og réttlæti. Framfaraflokkurinn við uppstokkun í íslenska flokkakerfinu. Ferskir vindar framtíðarinnar verða að blása um sali íslenskra stjórnmála.”

Engin ummæli: