þriðjudagur, febrúar 07, 2006
Fréttir af framboði (v)
„Ég er að sjálfsögðu ánægð. Ekki bara fyrir mína hönd, heldur fyrir hönd allra þeirra sem studdu mig í þessari erfiða baráttu. Í raun er ég ánægð fyrir hönd þjóðarinnar,” sagði Embla Eir Eyrúnardóttir í samtali við blaðamann Héraðsfréttatíðinda, stuttu eftir að yfirkjörstjórnin tilkynnti að hún hafði sigrað í prófkjöri Framfaraflokksins í Vesturlandskjördæmi eystra. Alls fékk Embla Eir 31 atkvæði í fyrsta og annað sætið. Hreinn Sveinsson frá Flannastöðum hafnaði í öðru sæti með 12 atkvæði í tvö efstu sætin. „Nú er bara spurning um að slíðra sverðin, safna liði, snúa bökum saman, láta hendur standa fram úr ermum og láta verkin tala,” svaraði Embla Eir þegar hún var innt eftir því hvað tæki við.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli