Í gegnum tíðina hef ég sánkað að mér minnisstæðum setningum sem nemendur mínir hafa skrifað í ritgerðum og prófverkefnum. Þessar setningar eru áhugaverðar að því leytinu til að þær eru gjörsamlega óskiljanlegar. Hér eru fáein dæmi:
(i)
Fjölmiðlar hljóta að njóta þessarar miklu tækni sem nú er, þegar hægt er að senda upplýsingar og myndefni, og halda fundi milli heimshluta á örskotsstundu, að ég tali nú ekki um ferðamöguleikana.
(ii)
Í nútímasamfélagi hafa fjölmiðlar gríðarleg áhrif á einstaklinga og samfélagið t.d. þegar kemur að útliti, lífsstíl og almennum kaupum. Þá verður svo til eitthvað samhengi þar sem fólk fær tækifæri á að skapa sína eigin menningu og hlutverk.
(iii)
Þrátt fyrir staðsetningu Íslands og þeirri staðrend að Ísland er eyja, sem að enn í dag er óþekkt í sumum löndum, hefur flæði upplýsinga, tækni og mennngarafurða frá nágranna ríkjum þess gert því kleift að þróast í þá átt sem flest ríki í “norðri” gera í dag og er
framarlega á sviði tækninýjunga og hönnunar miðað við smæð þess.
(iv)
Fjölmiðillinn hefur völdin til að fara yfir félagslega múra og vinna þá og spá ekki mikið í því að fá samþykki fyrir yfirráðum sínum.
(v)
Fjölmiðlar hafa tekið gífurlegum breytingum í áranna rás og þá sérstaklega á síðustu öld.
(vi)
Heimsmyndin er í stöðugri hnotskurn og er alltaf að breytast, sérstaklega þegar horft er til fyrri hluta 20. aldar.
(vii)
Með þeim breytingum sem hafa átt sér stað á grundvelli þess þjóðfélags sem við vesturlanda búar höfum að upplifa seinustu árinn og brátt áratugi hefur ollið gríðlegri umpólun í hugmynd manna til einstaklingsins og frelsi til að velja sýna eigin leiðir byggðar á vel upplýstum ákvörðunum.
miðvikudagur, apríl 12, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli