Ég var í heimsókn hjá kunningja mínum sem er kennari í framhaldsskóla hinum megin Elliðaáa. Hann var að fara yfir ritgerð og benti mér á undarlega málsgrein. Hún hljóðar svona:
"Karl Marx var fyrsti heimspekingurinn, en hann leyfði eiginkonu sinni allt sem flestar konur á hennar stétt máttu, t.d. að vinna. Hann setti konuna ekki fyrir neðan sig og kúgaði hana heldur sagði hann í ritum sínum ýmislegt sem benti til að honum fyndist að konur ættu að fá að láta heyrast meira í sér. Margir á hans tíma (oftast menn) voru mjög ósammála honum og fannst hann láta eiginkonu sína vera ganga yfir sig."
Á lokasíðu ritgerðarinnar skrifar hinn ónafngreindi nemandi;
"Verð ég nú að viðurkenna að þetta var ein sú erfiðasta ritgerð sem ég hef gert á allri ævi minni."
Því er við að bæta að eiginkona Marx hét Jenny von Westphalen og þau áttu þrjár dætur; Eleanor, Jenny, og Laura.
miðvikudagur, apríl 26, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli