föstudagur, mars 30, 2007

Blogg um blogg

Undanfarna daga og vikur hef ég skoðað það sem íslenskir bloggverjar eru að skrifa á bloggsíðu Morgunblaðsins. Það liggur við að hálf þjóðin hafi komið sér fyrir þarna ... og ekkert nema gott um það að segja. Hins vegar er eitt sem ég rak augun í og vil vekja athygli á, en það er hvað sumar skoðanir fólks virðast velkomnar og aðrar ekki. Þó svo að ég sé ekki sammála einhverjum í pólitík eða lífsafstöðu þá þýðir það ekki að ég skrifi athugarsemd við blogg og geri lítið úr persónu viðkomandi. Sérstaklega er þetta áberandi þegar femínistar eiga í hlut. Það er engu líkara að einhver hafi gefið út skot- og veiðileyfi á þá menn og konur sem aðhyllast jafnrétti kynjanna. Greinilegt er að fyrirmyndarmálþing (Ideal Sprachsituation) Jürgens Habermas er fjarri góðu gamni á Moggablogginu.

Engin ummæli: