mánudagur, ágúst 07, 2006

Bókasumarið mikla ... not!

Sumarið byrjaði vel ... allavega var ég með fullt af fögrum fyrirheitum varðandi lestur á góðum bókum. Reyndin var önnur. Einhvern tíma snemma í júní byrjaði ég á bókinni President Kennedy eftir Richard Reeves. Hún er rúmlega 700 blaðsíður að lengd og ég er enn að lesa hana. Samhliða henni er ég einnig að lesa bók um þá deild fjármálaráðuneytis Bandaríkjanna sem sér um að vernda forsetann eða m.ö.o. Secret Service. Þannig að afraksturinn í sumar er rýr, en ég held ótrauður áfram.

Engin ummæli: