“Vertu sæll elsku vinur, við hittumst svo á fundi hjá Kvæðamannafélaginu á Neskaupsstað.”
“Þetta er þriðja brennivínsflaskan mín í þessari viku.”
“Mér þykir þetta leitt frú, en þú getur fengið sætið mitt þegar ég fer úr vagninum.”
“Ó hvað ég elska að tjalda.”
“Flott, ekkert sjónvarp. Þetta líkar mér.”
“Til allrar hamingju er RÚV hætt að sýna Star Trek þætti.”
“Jæja, nú er ég hættur að kaupa bækur hjá Amazon.”
“Hvað er svo gaman við það að horfa á einhverjar myndir af eldgömlum sjónvarpstækjum?”
fimmtudagur, ágúst 10, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
8 ummæli:
Sæll gamli,
Þú sagðir ranglega: “Vertu sæll elsku vinur, við hittumst svo á fundi hjá Kvæðamannafélaginu á Neskaupsstað.”
Rétt er að segja: “Vertu sæll elsku vinur, við hittumst svo á fundi hjá Kvæðamannafélaginu Í NeskaupStað.”
Knúturinn.
Það er svona með staðarheiti og kennileiti utan Reykjavíkur og forsetningar ... you can never win.
Já, það er nú hreinlega ósanngjarnt að ætlast til þess að menn kunni fara hárrétt með staðarheiti og forsetningar þegar kemur að stöðum sem menn hafa einungis heyrt getið um.
Já, það er nú hreinlega ósanngjarnt að ætlast til þess að menn kunni fara hárrétt með staðarheiti og forsetningar þegar kemur að stöðum sem menn hafa einungis heyrt getið um.
En í þessum póst-móderníska heimi er það ekki nóg að hafa "heyrt um" eitthvað? Er sú upplifun lakari en t.d. að sjá fyrirbærið með eigin augum? Mikið vildi ég að ég gæti borið þetta undir Bourdieu.
Þú þarft greinilega að fara að horfa (aftur?) á Good Will Hunting.
Já, og þetta var sumsé ég í fyrra commenti. Einhverra hluta vegna vildi tölvan birta þetta tvisvar og nafnlaust í bæði skiptin.
Já Esther, mér datt í hug að þú væri þessi Anonymous. Þessi "broddflugutónn" sem er versta martröð allra kennara er vel þekkjanlegur.
Hahaha! Já, ég hef náð mér í ýmsa titla í gegnum tíðina en þennan þykir mér einna vænst um.
Skrifa ummæli