laugardagur, ágúst 19, 2006
Menningarnótt
Í dag fór fjölskyldan í miðbæ Reykjavíkur til að upplifa dagskrá Menningarnætur (þarf ekki að skipta um nafn á þessu fyrirbæri?). Þar var margt um manninn og margt að sjá. Fyrir utan verkfæraverslunina Brynju á Laugaveginum voru tveir menn að spjalla. Annar þeirra spurði, "Hvað ert þú að gera hér?" Hinn svaraði, "Nú, ég er að skoða menninguna, maður!" Mér fannst þetta orðalag skondið, "að skoða menninguna." Þessi maður er greinilega að nota skilgreiningu Raymond Williams á menningu en hún er á þessa leið; "a particular way of life, which expresses certain meanings and values, not only in art and learning, but also in institutions and ordinary behaviour."
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli