miðvikudagur, ágúst 09, 2006

Nú er ég orðinn gamall.

Ég fékk endalega staðfestingu á því að ég sé orðinn gamall. Viðmælandinn minn sem var kona á fertugsaldri sagði, "...ég er að tala um svona kalla á þínum aldri sem hlusta alltaf á R.E.M."

Þetta var sárt.

Á það skal bent að ég hlusta oft og margsinnis á Fleetwood Mac, Eagles, Bob Dylan (fyrir daga Slow Train Coming) og Paul McCartney & Wings.

2 ummæli:

Esther sagði...

Hahaha!

Ég man eftir því þegar ég var kölluð "kona" í fyrsta skipti. Undarleg tilfinning.

HTB sagði...

Þegar ég las þitt komment datt mér í hug atvik sem gerðist þegar ég var 17 eða 18 ára (way back in 1979). Ég var að hjóla framhjá barnaheimili (við kölluðum leikskóla "barnaheimili" í þá daga) og einhver krakki með attitúd æpti, "hí hí ... karl á hjóli."