fimmtudagur, nóvember 30, 2006

Deilan endalausa um jólatexta

Ég bíð þolinmóður eftir að lesa/heyra/sjá í fjölmiðlum deilur um hvort á að segja "með gylltan staf í hendi" eða "með gildan staf í hendi" og einnig "upp á stól stendur mín kanna" eða "upp á stól stend ég og kanna." Síðan verður vitaskuld leitað til Árna Björnssonar þjóðháttarfræðings til að fá Salómonsdóm um málið. Dómurinn var að vísu kveðinn upp árið 2005, 2004, 2003, o.s.frv. en hví ekki aftur í ár?

Engin ummæli: