föstudagur, nóvember 24, 2006

Þökk fyrir Helga Möller

Ég hef lengi haft hlýjar taugar til söngkonunnar og flugfreyjunnar Helgu Möller. Hún sýndi mér vinahót sem mun seint gleymast. Ég var að koma heim frá Svíþjóð. Ég fékk sæti í 9ndu röð þar sem plássið er feykinóg fyrir fæturna en sætið sem ég fékk úthlutað var við útgöngudyrnar, þannig að ég varð að sitja ögn á ská. Við hlið mér settust bandarísk hjón. Konan var í þykkri dúnúlpu með krullað hár og risastór gleraugu. Hún var eflaust sætur krakki á sínum tíma en ekki lengur. Hún var feit. Eiginmaðurinn var feitur og það var ekkert sætt við hann. Hann var einnig í dúnúlpu. Hann settist við hliðina á mér og hægri handleggur hans fór yfir stólarminn og yfir á mitt svæði. Hann sneri sér að mér og sagði, “Hi there and how are you? So are you gonna do Iceland?” Konan gerði tilraun til að beygja ögn fram og kynnti sig og bætti við, “My great-grandfather was from Iceland. Johann Gudmundsson from Sauthacrocker.” Ég er langt í frá að vera mannafæla en mér leist ekki á blikuna. Ég þekki Bandaríkjamenn og veit hvernig þeir geta látið um borð í flugvél. Helga Möller var flugfreyja í þessari ferð og hún kannaðist við mig þegar ég flaug til Svíþjóðar fáum dögum áður. Einhverra hluta vegna las hún hugsanir mínar. Hún kom til mín og bauð mér sæti í Saga Class. Ég var ekki lengi að þiggja boðið og kvaddi sessunautana mína. “Maybe I’ll see you guys around,” sagði ég. “Sure, we’re staying at the Loftleeder Hotel. Why don’t we meet up and we can go out or something.”


Ég hitti þau aldrei. Mig langaði ekki til þess ... en þökk fyrir, Helga Möller.



Engin ummæli: