laugardagur, nóvember 25, 2006
Saga af Nixon
Nixon Bandaríkjaforseti var tímabundinn maður. Honum leiddist ákaflega að sóa tímanum til einskis. T.d. reyndi hann að koma sér undan að taka á móti nýskipuðum erlendum sendiherrum á skrifstofu sinni í Hvíta húsinu, en samkvæmt prókollu gat hann það ekki þar sem hann var þjóðhöfðingi og varð því að veita skipunarbréfinu móttöku. Nixon vildi ekki eyða of miklum tíma í opinberar móttökur. Hann bað kokkinn sinn að sleppa súpunni sem forrétt og koma strax með aðalréttinn. "Hvers vegna?" spurði kokkurinn, því honum var ekki kunnugt um raunverulegu viðhorf forsetans. "Vegna þess að karlmenn borða ekki súpur," svaraði Nixon.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Like it!
Er þetta þú minn kæri fyrrverandi vinnufélagi?
Yep. Fylgist með úr fjarlægð...
Skrifa ummæli