Um helgina mokaði ég snjó. Þörfin var mikil og ég mokaði af ákefð. Ég var ekki einn. Það lá við að hver einasti karlmaður (hvar voru konurnar?) í götunni voru að gera hið sama. Ég mokaði tröppurnar, gangstéttina fyrir framan húsið og meira að segja mokaði ég snjóinn burt frá bílskúr konunnar sem býr á hæðinni fyrir neðan mig. Ég mokaði í kringum bílinn minn. Ræsti vélina, setti í hlutlausan gír, mokaði og skafaði snjónum af honum. “Þetta er nú meiri snjórinn,” sagði ég við nágrannann minn í næsta húsi. “Já, það er svona,” sagði hann, “þetta kemur og fer.”
þriðjudagur, nóvember 21, 2006
Snjór
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Mér líkar nýja lúkkið og svo er ég ánægður með tilsvar nágrannans. Það var verulega íslenskt.
Jón.
Lofaði að láta þig vita...
Hvaðan kom þetta Thor nafn?
Skrifa ummæli